Samráð í útboðum getur tekið á sig margar myndir. Samráð í útboðum felst oft í eftirfarandi aðferðum: falskt tilboð (að skila tilboðum sem verkkaupi getur ekki samþykkt, til að gefa til kynna að raunveruleg samkeppni sé til staðar), tilboðshömlun (að halda sig frá útboði eða draga tilboð til baka svo ákveðið fyrirtæki vinni), tilboðsskipti (fyrirtæki skiptast á að vera vinningshafi) eða markaðsskipting (að skipta upp markaðnum og semja um að keppa ekki um ákveðna viðskiptavini, svæði, útboð eða vörur). Þessar aðferðir eru ekki þær einu og eru ekki gagnkvæmt útilokandi; þær geta verið notaðar saman og í hvaða samsetningu sem er.
Ákveðnir framboðs- og eftirspurnarþættir geta auðveldað samráð. Til dæmis eru mikil samþjöppun á markaði, samhverfa meðal markaðsaðila, lítil eða erfið markaðs innganga og lágt nýsköpunarstig framboðshliðaráhættuþættir sem geta auðveldað ólögmætt samráð í útboðum. Eftirspurnarhliðaráhættuþættir fela m.a. í sér fyrirsjáanlega eftirspurn og endurtekin útboð. Innkaupastofnanir ættu að skilja einkenni þess markaðar sem þær kaupa á og vera sérstaklega á varðbergi þegar slíkir þættir sem auðvelda samráð eru til staðar.
Hægt er að draga úr áhættu samráðs í útboðum ef opinber útboð eru vandlega hönnuð. Leiðbeiningarnar innihalda gátlista fyrir hönnun útboðs, sem lýsir röð aðgerða til að hjálpa við að skipuleggja og framkvæma innkaup á þann hátt sem takmarkar áhættu á samráði í útboðum. Slíkar aðgerðir fela m.a. í sér að skilja markaðinn og mögulega birgja; að taka upp kröfur sem auðvelda þátttöku bjóðenda og viðmið við val tilboðs sem stuðla að samkeppni; að nota rafræn innkaupakerfi; að vara bjóðendur við tilvist og umfangi viðurlaga vegna samráðs í útboðum.
Merki um samráð í útboðum (rauð flögg) ætti að skilja svo hægt sé að bera kennsl á þau og tilkynna til samkeppnisyfirvalda. Erfitt er að greina samkomulag um ólögmætt samráð þar sem það er gert í leyni. Leiðbeiningarnar innihalda gátlista fyrir greiningu samráðs í útboðum, sem setur fram rauð flögg til að hjálpa til við að bera kennsl á og tilkynna ólögmætt samráð. Rauðu flöggin fela m.a. í sér óvenjulegt útboðsmynstur eða verðlagningu, eða grunsamlega hegðun eða yfirlýsingar bjóðenda. Mælt er með að alvarlegar grunsemdir um samráð í útboðum séu kannaðar í samráði við viðeigandi samkeppnisyfirvöld.
Innkaupaaðilar ættu að vera meðvitaðir um reglur samkeppnislaga sem gilda í opinberum innkaupum. Þjálfunaráætlanir fyrir innkaupaaðila um samráð í útboðum og greiningu þess, ásamt leiðbeiningum um baráttu gegn samráði í samræmi við þessar leiðbeiningar, geta hjálpað.
Samráð í útboðum getur farið saman við önnur brot, eins og spillingu og fjársvik. Þetta krefst fræðslu gagnvart viðkomandi stofnununum, þ.m.t. löggæsluyfirvöldum, um hlutverk hvers stjórnvalds og stuðningi við náið samstarf á milli viðkomandi aðila.
Samkeppnisyfirvöld ættu að vinna saman, formlega og óformlega, með innkaupa- og öðrum opinberum yfirvöldum, við framkvæmd tilmælanna er mikilvægt að viðkomandi yfirvöld vinni saman. Er þar s.s. átt við innkaupayfirvöld, samkeppnisyfirvöld, innri og ytri endurskoðendur, yfirvöld sem hafa sérstakt eftirlit með spillingu og saksókn (ef við á). Í leiðbeiningunum er að finna sérstakan kafla um mikilvægi samstarfs á milli stofnana, þar á meðal gagna- og upplýsingaskipti, miðlun af reynslu, stofnun sérstakra vinnuhópa og möguleika á starfsmannaskiptum, auk innleiðingar innlends og/eða alþjóðlegs samstarfs.