Opinberar og einkareknar stofnanir reiða sig oft á útboð til að kaupa það sem þær þurfa. Þegar bjóðendur undirbúa tilboð sín sjálfstætt og af heiðarleika tryggja niðurstöður útboðs hagkvæmni. Ólögmætt Samráð í útboðum (e. Bid-rigging) á sér stað þegar fyrirtæki koma sér saman um að hækka verð eða minnka gæði tilboða sinna. Samráð í útboðum er ólöglegt samkvæmt samkeppnislögum í öllum OECD-ríkjum. Í mörgum þeirra er það refsiverð háttsemi samkvæmt hegningarlögum. Samráð er sérstaklega skaðlegt í opinberum innkaupum þar sem það hefur áhrif á opinbera þjónustu, sóar opinberu fé og dregur úr trausti á hinu opinbera.
Árið (2023[1]), endurskoðaði OECD-ráðið á ráðherrastigi tilmæli um baráttu gegn ólögmætu samráði í opinberum innkaupum [OECD-LEGAL-0396]. Tilmælin miða að því að stuðla að virkri samkeppni í opinberum innkaupum, draga úr hættu á samráði, auðvelda uppgötvun samráðs og styðja við framkvæmd samkeppnislaga.
Í samræmi við fyrirmæli ráðsins endurskoðaði samkeppnisnefnd OECD leiðbeiningar um baráttu gegn samráði í opinberum innkaupum árið 2025. Við endurskoðunina var byggt á umræðum í hringborðum OECD um samráð, framkvæmd samráðsmála og málsvaraverkefnum OECD innan og utan OECD-landa, auk reynslu skrifstofu OECD af verkefnum sem varða baráttu gegn samráði í opinberum innkaupum.
Leiðbeiningarnar miða að því að styðja innkaupa- og samkeppnisyfirvöld við að koma í veg fyrir og greina samráð í útboðum. Þær innihalda almennar en ekki tæmandi meginreglur sem hægt er að aðlaga að hverju innkaupaferli. Þær innihalda umfjöllun um mismunandi form ólögmæts samráðs og kerfi sem aðilar að samráði nýta sér til uppgjörs á milli þátttakenda (þóknunar, refsingar eða bóta). Leiðbeiningarnar útskýra tengsl samráðs við aðra ólögmæta háttsemi og hvaða einkenni framboðs og eftirspurnar geta auðveldað samráð. Meginefni þeirra eru tveir gátlistar:
Gátlisti fyrir hönnun útboðs, sem lýsir aðgerðum til að skipuleggja og framkvæma innkaup þannig að dregið sé úr hættu á samráði
Gátlisti fyrir greiningu samráðs, sem setur fram viðvörunarmerki (rauð flögg) til að auðvelda það að upplýsa um ólögmætt samráð.
Leiðbeiningarnar voru unnar af vinnuhópi 3 um samvinnu og fullnustu. Þær voru síðan ræddar, samþykktar og gerðar opinberar af Samkeppnisnefnd OECD þann 19. júní 2025.
Leiðbeiningarnar voru unnar af Despinu Pachnou ásamt Eduardo Mangada Real de Asúa og með framlagi frá Ori Schwartz og Antonio Capobianco frá samkeppnissviði OECD. Við vinnu við leiðbeiningarnar var jafnframt haft samráð við nefnd OECD um opinbera stjórnsýslu, vinnuhóp sérfræðinga í opinberum innkaupum og starfsfólk innviða- og innkaupasviðs OECD. Skjalið var undirbúið til útgáfu af Ericu Agostinho.