Viðmiðunarreglur Efnahags- og framfarastofnunarinnar fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki um ábyrga viðskiptahætti eru tilmæli sem ríki beina til fjölþjóðlegra fyrirtækja. Þær miða að því að hvetja til jákvæðs framlags sem fyrirtæki geta lagt af mörkum til efnahagslegra, umhverfislegra og félagslegra framfara og að lágmarka neikvæð áhrif á mál sem falla undir viðmiðunarreglurnar og kunna að tengjast rekstri fyrirtækis, vörum og þjónustu. Viðmiðunarreglurnar fjalla um öll meginsvið viðskiptaábyrgðar, þ.m.t. mannréttindi, réttindi launþega, umhverfismál, mútugreiðslur, hagsmuni neytenda, upplýsingagjöf, vísindi og tækniþekkingu, samkeppni og skattlagningu. Útgáfa viðmiðunarreglnanna frá 2023 veitir uppfærð tilmæli um ábyrga viðskiptahætti á lykilsviðum, svo sem loftslagsbreytingum, líffræðilegri fjölbreytni, tækni, ráðvendni í viðskiptum og áreiðanleikakönnun aðfangakeðju, sem og uppfærðar verklagsreglur um framkvæmd fyrir landstengiliði fyrir ábyrga viðskiptahætti.
Viðmiðunarreglur Efnahags‑ og framfarastofnunarinnar (OECD) fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki um ábyrga viðskiptahætti